Fágað útlit bílsins einkennist af mýkt og flæði sem veitir e:Ny1 sérstöðu sem fyrsta flokks rafbíll.
· Hönnun nýja e:Ny1-bílsins er afgerandi, snjöll og fáguð sem veitir honum einstakt yfirbragð og sérstöðu í flokki rafbíla
· Ný hönnun á aðalljósum, grilli, stuðara, hliðarsvuntu og felgum til að veita e:Ny1 einstaklega afgerandi útlit
· Hönnun bílsins sækir innblástur í rennilegar útlínur HR-V en skögunin að framan er töluvert minni sem skapar örugga ásýnd
· Advance-útfærslur státa einnig af þakglugga sem hleypir dagsbirtu í innanrýmið og bætir útsýni ökumanns
· Stórar 18" felgur, mikil sporvídd og lítil skögun stuðla að afgerandi útliti ásamt því að auka stöðugleika og lipurð fyrir sportlega akstursupplifun
· Einstakt innanrýmið er hannað með þægindi í fyrirrúmi til að veita öllum farþegum afslappandi og áhyggjulausa akstursupplifun
· 15,1 tommu snertiskjár er í miðju innanrými e:Ny1 sem skapar einstakt og fágað andrúmsloft
· Innbyggt 10,25 tommu stafrænt mælaborð undirstrikar þá tæknilegu fágun sem einkennir rafbílinn
· e:Ny1 nýtir loftdreifikerfið, sem fyrst var kynnt í HR-V, til að skapa róandi umhverfi fyrir farþega með því að beina lofti frá þeim og koma í veg fyrir heitan og kaldan blástur frá gluggum
· Gæði innanrýmisins leggja áherslu á lúxus og þægindi sem skapa einstakt andrúmsloft
· Rúmgott 346 lítra farangursrými
Nýtt notendaviðmót og háþróuð notendamiðuð tækni auðveldar farþegum að tengjast og verða eitt með bílnum og möguleikar fyrir snjallhleðslu verða hluti af hversdagsleikanum.
· 15,1 tommu snertiskjár fyrir miðju og 10,25 tommu stafrænt mælaborð færa viðskiptavinum Honda nýtt og háþróað notendaviðmót
· Stílhrein og vel skipulögð valmynd gerir snertiskjáinn einfaldan í notkun og kemur í veg fyrir truflanir
· Algengir hnappar eru undir tilheyrandi virkni svo að þú þurfir ekki að leita að þeim á valmyndinni
· Svæðið „Tenging“ á efri hlutanum býður upp á algenga aksturseiginleika, s.s. leiðsögn og bakkmyndavél
· „Akstursaðstoð“ sýnir stöðu og stillingar bílsins fyrir hljóð og samskipti, s.s. tiltekin forrit, aflstreymismæli og EV-valmynd
· Neðri hluti skjásins er tileinkaður stjórnhnöppum fyrir loftkælingu
· 10,25 tommu mælaborðið fyrir framan ökumanninn sýnir fjöldann allan af aksturs- og afþreyingarupplýsingum og hægt er að stilla það eftir hentisemi
· Mögulegt er að tengja farsíma við bílinn með þráðlausu Apple Car Play eða snúrutengdu Android Auto
· Rafakstursupplýsingar eru innbyggðar í notendaviðmótið svo hægt sé að sjá ítarlegar upplýsingar um orku og hleðslu (hversu mikil hleðsla er eftir, hleðslustöðu, hleðslutíma og nálægar hleðslustöðvar)
Háþróaðiraksturs- og árekstraröryggiseiginleikar bílsins tryggja öryggi farþega frá öllum hliðum
Háþróuð Honda SENSING-öryggistækni er staðalbúnaður:
Hemlakerfi með árekstrarvörn (CMBS)
Sjálfvirkur hraðastillir (ACC) með hraðaminnkun og umferðarteppuaðstoð
Kerfi sem kemur í veg fyrir að ekið sé út af veginum
Akreinastýring
Árekstrarvörn með stjórnun inngjafar (að aftan)
Sjálfvirkt háljósakerfi
Umferðarskiltagreining og ISL-hraðatakmörkun
Örugg en lipur akstursupplifun sem byggð er á hugmyndafræði Honda og sameinar kraftmikinn akstur ogkosti þess að aka rafbíl.
· Grundvallarmarkmið okkar við hönnun bílsins var að skapa mjúka og lipra akstursupplifun sem tryggir að það sé bæði skemmtilegt og spennandi að aka bílnum á sama tíma og þægindi og rými fyrir farþega eru í fyrirrúmi
· Við lögðum áherslu á að bíllinn gæti skilað áreiðanlegu drægni fyrir daglega notkun, fyrirsjáanlegum akstri og stöðugleika
· Við hönnuðum bílinn með áherslu á mjúkar hraðabreytingar án þess að tapa þeirri kraftmiklu og viðbragðsfljótu hröðun sem einkennir rafbíla.
Verið velkomin í sýningarsal Öskju
Hér má sjá nýja bíla á lager eða eru væntanlegir innan tíðar.