Vinnustaðurinn Askja

Metnaður, fagmennska, heiðarleiki og gleði

Mikið kapp er lagt á að laða að, ráða, efla og halda í hæft starfsfólk.

Askja sérhæfir sig í sölu og þjónustu á bifreiðum frá Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart.

Markmið fyrirtækisins er að vera í fararbroddi hvað varðar þjónustu til viðskiptavina. Lögð er sérstök áhersla á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika þar sem starfsfólk leggur sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu. Hjá Öskju starfar því öflugur hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu.

Eigandi Öskju er eignarhaldsfélagið VEKRA ehf.

Gildin okkar

  • Lögð er sérstök áhersla á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika þar sem starfsfólk leggur sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu.

  • Við viljum tryggja gæði og fagmennsku í öllu okkar starfi og að það endurspeglist í vinnubrögðum og þjónustu. Við leggjum okkur fram við að koma auga á leiðir til þess að gera hlutina stöðugt betur og ná meiri árangri

  • Við komum heiðarlega fram hvort sem er við samstarfsfólk eða viðskiptavini. Uppbyggileg og lausnamiðuð samskipti eru höfð að leiðarljósi í öllu okkar starfi.

  • Við leggjum öll okkar af mörkum til að viðhalda menningu sem einkennist af gleði.

„Í Öskju leggjum við okkur fram á hverjum degi við að veita framúrskarandi þjónustu. Við viljum halda viðskiptavinum okkar upplýstum, ánægðum og á ferðinni.“

Starfsumhverfi

  • Áhersla er lögð á opin og uppbyggileg samskipti. Leitað er lausna og jákvæðni höfð að leiðarljósi.
  • Við viljum gera starfsfólki kleift að samræma atvinnu- og fjölskyldulíf með sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið.
  • Unnið er markvisst að því að stuðla að heilbrigði starfsfólks með heilsutengdum viðburðum.
  • Öflugt starfsmannafélag er hjá Öskju og reglulegir viðburðir og skemmtanir.
  • Vinnustaðagreiningar eru lagðar fyrir reglulega.
Mannauðsstefna Öskju

Ráðningar

  • Lögð er áhersla á að laða að umsækjendur með fjölbreyttan bakgrunn, mikla þjónustulund og jákvætt viðhorf.
  • Við val á nýju starfsfólki er horft til þess að gildi starfmanns falli að gildum vinnustaðarins og hvernig samsetning deildar eða teymis er hverju sinni.
  • Vel er tekið á móti nýju starfsfólki, en markmiðið er að því líði vel á vinnustaðnum frá fyrsta degi.
  • Nýir stjórnendur fá handleiðslu og þjálfun.
  • Sjá störf í boði.

Starfsþróun

  • Boðið er upp á markvissa fræðslu og starfsþróun sem tekur mið af stefnu Öskju hverju sinni.
  • Starfsþróun er margvísleg og getur falist í fræðslu og þjálfun, aukinni ábyrgð eða nýjum verkefnum.
  • Starfsfólk er hvatt til að eiga frumkvæði að sinni eigin starfsþróun og til að sýna metnað til að takast á við nýjar áskoranir og þróast í starfi.

Jafnrétti

Askja hefur innleitt jafnlaunastaðalinn ÍST 85/2012 og hefur hlotið jafnlaunavottun. Höfum við komið okkur upp stjórnkerfi til að tryggja að ákvörðun launa sé málefnaleg og að rökstuðningur fylgi launaákvörðunum.

  • Það er markmið Öskju að bjóða samkeppnishæf kjör og að allir starfsmenn njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
  • Við höfum hlotið jafnlaunavottun BSI.
  • Askja er með jafnréttisstefnu og aðgerðaáætlun í jafnréttismálum.
Launastefna Öskju

Umhverfi

Askja hefur innleitt umhverfisstaðalinn ISO 14001, en við viljum vera leiðandi á sviði umhverfismála og leitast við að vernda umhverfi okkar og koma í veg fyrir mengun. Við höfum sett okkur umhverfisstefnu sem lýsir markmiðum okkar og þeim aðgerðum sem við höfum innleitt.

  • Við flokkum allt sorp.
  • Við vinnum gegn matarsóun.
  • Við notum rafhlaupahjól til að fara á milli bygginga.
  • Við erum með umhverfisvottun ISO 14001.
  • Við kolefnisjöfnum reksturinn okkar.
Umhverfisstefna Öskju