Sérfræðingur á fjármálasviði
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi á fjármálasvið. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á áhugaverðum og spennandi bílamarkaði.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði.
Helstu verkefni:
- Skráning reikninga
- Afstemmingar á viðskiptavina- og lánadrottnareikningum og banka
- Dagleg sjóðsuppgjör og vinna við mánaðarleg uppgjör
- Afgreiðsla og bókanir vegna innflutnings bifreiða og varahluta
- Þátttaka í umbóta- og sjálfvirkni verkefnum
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði fjármála eða viðskipta eða mikil reynsla af sambærilegu starfi
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Æfingaaðstaða og íþróttastyrkur
- Samkeppnishæf laun
- Reglulegir viðburðir
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.
Nánari upplýsingar um starfsumhverfið: https://www.askja.is/vinnustadurinn
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas Guðbjörnsson fjármálastjóri jonasg@askja.is
Umsóknarfrestur frá:30.06.2025
Umsóknarfrestur til:15.07.2025