Bókun og innheimta

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að sinna bókun og innheimtu á fjármálasviði. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á áhugaverðum og spennandi bílamarkaði.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði.

Helstu verkefni:

  • Skráning reikninga
  • Afstemmingar á viðskiptavina- og lánadrottnareikningum og banka
  • Dagleg sjóðsuppgjör
  • Stuðningur við önnur störf á fjármálasviði

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi  
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Af hverju Askja?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Æfingaaðstaða og íþróttastyrkur
  • Samkeppnishæf laun
  • Reglulegir viðburðir
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks

Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.

Nánari upplýsingar um starfsumhverfið: https://www.askja.is/vinnustadurinn

Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas Guðbjörnsson fjármálastjóri jonasg@askja.is

Umsóknarfrestur frá:30.06.2025
Umsóknarfrestur til:15.07.2025

Sækja um