5. okt. 2023

Varahlutir Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla flytjast til Sleggjunnar

Frá og með 9. október mun öll afgreiðsla og þjónusta varahluta Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla flytjast til Sleggjunnar

Mercedes-Benz eActros

Hjá Sleggjunni eru daglegar hraðpantanir og vikulegar skipasendingar ásamt því að fullkomið vöruhús Mercedes-Benz í Þýskalandi veitir hraða og örugga þjónustu.

Kæri viðskiptavinur Öskju og Sleggjunnar.

Frá og með 9. október mun öll afgreiðsla og þjónusta varahluta Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla flytjast til Sleggjunnar.

Við viljum um leið láta vita að þjónusta verður að einhverju leyti skert föstudaginn 6. október vegna flutninganna. Við þökkum skilninginn og þolinmæðina.

Sleggjan er systurfélag Öskju og er þar staðsett öflugt verkstæði, sala og ráðgjöf nýrra tækja og nú einnig varahlutir.
Símanúmer Sleggjunnar er 588-4970 og netfangið varahlutir(hjá)sleggjan.is
Sleggjan er til húsa að Desjamýri 10, 270 Mosfellsbæ.

Á meðan við hjá Öskju þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti þá hlakkar okkur í Sleggjunni til að sinna eigendum Mercedes-Benz enn betur.

Við tökum vel á móti ykkur í Desjamýri 10 og bendum á að einnig er hægt að fylgjast með nýjustu fréttum frá Sleggjunni á Facebook og Instagram síðum Sleggjunnar.

Kær kveðja,

Starfsfólk Öskju og Sleggjunnar.

Varahlutir hjá Sleggjunni