8. feb. 2024

smart #3 væntanlegur í vor

Sportjepplingur sem vekur upp sterkar tilfinningar: framúrskarandi afköst og rennileg hönnun.

smart-3-blar-ad-framan

Mikil drægni, gott viðbragð og stuttur hleðslutími einkenna smart #3

#3 kemur nýr inn í vörulínu smart og í flokk lúxusrafbíla. Sportlegar sveigjur og kraftmikill framhluti bílsins veita honum tímalaust og fágað yfirbragð.

Sportlegt útlit bílsins er einnig endurspeglað í miklum afköstum. Hámarksafl er frá 315 kW í BRABUS-línunni til 200 kW í hinum línunum, afl sem setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla.

Hvað við kemur hröðun eru afköst smart #3 jafnvel enn sportlegri en #1: BRABUS-útfærslunni, þar sem hann fer úr 0 í 100 km/klst á litlum 3,7 sekúndum. Pro+, sem grunnútfærslulínan, er aðeins 5,8 sekúndur.

Ekki missa af nýjustu fréttum af komu smart #3 til landsins!

Skrá mig á áhugalista
smart-3-appelsinugulur-brabus-ad-aftan
#3 BRABUS fer úr 0-100 á einungis 3,7 sekúndum

Heildardrægni smart #3 er einnig meiri en #1: milli 435 og 455 km.

Fínstillt fjöðrunarkerfi og 2785 mm hjólhaf, ásamt mjög straumlínulagaðri yfirbyggingu með loftviðnámsstuðul upp á aðeins 0,27 skila kraftmikilli akstursupplifun.

Skilvirk jafnstraumshleðslutækni upp á allt að 150 kW/klst býður upp á hleðslu smart #3 úr 10 í 80 prósent á innan við 30 mínútum. Til viðbótar er nýja gerðin búin fjölbreyttum akstursaðstoðarkerfum á borð við þjóðvegaaðstoð og sjálfvirka bílastæðaaðstoð.

smart-3-skjar-ad-innan
12,8’’ miðlægur snertiskjár í fullri háskerpu fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi smart tryggir snurðulausa og einfalda akstursupplifun

Mikil áhersla er á snurðulausa akstursupplifun með fyrsta flokks hugbúnaði og þráðlausum uppfærslum.

Skilvirk jafnstraumshleðslutækni upp á allt að 150 kW/klst býður upp á hleðslu smart #3 úr 10 í 80 prósent á innan við 30 mínútum. smart #3 er snjall ferðafélagi í daglegu lífi og styður ökumanninn með notendavænu akstursvistkerfi. Þar á meðal eru ýmis kerfi sem eru hluti af Pilot Assist-kerfi smart, svo sem þjóðvegaaðstoð (HWA) og sjálfvirk bílastæðaaðstoð (APA).

#3 er einnig búinn Android Auto og Apple CarPlay sem gerir ökumönnum kleift að færa snjallsímaeiginleika og -forrit á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins.

smart-3-blar-a-ferd
Straumlínulögun með loftviðnámsstuðul upp á aðeins 0,27
Þetta er einstakur bíll sem veitir frábæra upplifun frá fyrsta augnabliki. Hann er byggður á sama undirvagni og #1 en er þó töluvert snarpari og sportlegri. smart hefur tekist að gera bíl sem hefur enn minni loftmótstöðu, enn meiri drægni og stendur undir öllum þeim eiginleikum sem ökumenn mega búast við frá sportbíl í lúxusflokki.
Símon Orri Sævarsson, sölustjóri smart á Íslandi
smart-3-appelsinugulur-brabus-a-ferd
Drægni á milli 435 og 455 km eftir hvaða línu ræðir

Símon Orri, sölustjóri smart á Íslandi, var á meðal þeirra fyrstu í Evrópu sem fengu að prófa nýjan og sportlegan smart #3.

Sjáðu myndbandið þar sem Símon fer yfir nokkra af spennandi eiginleikum bílsins hér fyrir neðan.