23. júní 2023

smart #1 frumsýndur og kominn í sölu á Íslandi

Sérstakir frumsýningardagar smart stóðu yfir dagana 15. - 16. júní í nýju sýningarrými smart á Krókhálsi 11

Einn heppinn aðili vann afnot af nýjum og glæsilegum smart #1 í allt sumar.

Allir sem skráðu sig í reynsluakstur yfir frumsýningardaga smart fóru sjálfkrafa í pott og gátu unnið afnot af bílnum í allt sumar. Dregið var eftir að frumsýningardögum lauk og datt Árni Arnar Sæmundsson í lukkupottinn! Við hjá Öskju óskum honum innilega til hamingju!

smart #1 er umhverfisvænn, framsækinn og nútímalegur bíll með allt að 420 km drægni og 1600 kg dráttargetu. Hann er einnig einstaklega rúmgóður og stílhreinn ásamt því að bjóða upp á mikið úrval litasamsetninga.
Bíllinn kemur í þremur línum: Pro+, Pulse og sérstakri Brabus útfærslu.

Frumsýningardagar heppnuðust afar vel og kom fjöldi góðra gesta í nýtt sýningarrými smart.

Komdu við og reynsluaktum nýjum smart #1
Við tökum vel á móti öllum sem koma til okkar á Krókháls 11!

Sjá myndir frá frumsýningu smart #1 hér að neðan

Nánar um smart