27. maí 2025

Nýr smart #5 er á leið til landsins

Getur hlaðið frá 10-80% á 18 mínútum.

smart #5 á ferð með tré í bakgrunni

Nýr smart #5 fékk að njóta sín við krefjandi akstursaðstæður í Douro-dalnum í Portúgal á dögunum þegar fyrsti opinberi reynsluakstursviðburðurinn í Evrópu fór fram. Ljóst er að hér er á ferð ökutæki sem er tilbúið að sanna sig – með 800V hleðslukerfi, háþróuðum aksturseiginleikum, tækninýjungum og öllu því sem þú getur óskað þér þegar kemur að búnaði.
Reynsluakstur fjölmiðla stóð yfir í tvær vikur þar sem yfir 170 blaðamenn og efnisframleiðendur frá 19 löndum fengu tækifæri til að aka bílnum og upplifa allar hliðar hans í fjölbreyttu landslagi portúgölsku sveitarinnar.

„Ég er sannfærð um að smart #5 sé öflug viðbót við íslenskan rafbílamarkað,“ segir Sigrún Ágústa, vörumerkjastjóri smart. „Bíllinn hentar íslenskum aðstæðum einkar vel – hann er rúmgóður, kraftmikill og býr yfir algjörlega framúrskarandi búnaði og þægindum sem henta nútíma fjölskyldum.“ 
Innanrými smart #5

Fjölhæfni og framtíðarlausnir

Nýr smart #5 kemur í þremur útfærslum til Íslands – Pulse, Summit Edition og BRABUS – sem allar eru fjórhjóladrifnar og tilbúnar fyrir íslenska landslagið. Bíllinn er með allt að 540 km drægni og 400 kW hraðhleðslu, sem gerir honum kleift að fara úr 10% í 80% hleðslu á aðeins 18 mínútum.

Bíllinn er einnig búinn háþróuðu stýrikerfi smart OS 2.0 með sýndarveruleika í mælaborði, gervigreindarstýringu og 20 hátalara Sennheiser hljóðkerfi með möguleika á Dolby Atmos.

Horft út um þakglugga á smart #5

Forsala er hafin

Nýr smart #5 er frá 7.590.000 kr með styrk og er forsala nú þegar hafin.
Bíllinn verður sýndur á næstu vikum og verður hægt að reynsluaka honum hér á landi strax í kjölfarið.

Sjá nánar
Innanrými smart #5. Brúnt áklæði á sætum.

Vertu viss um að fá allar fréttir um komu hans til landsins og skráðu þig á áhugalistann.

Skrá á áhugalista