13. mars 2020

Nýr 9 manna rafbíll frá Mercedes-Benz með 421 km drægi

Nýr og breyttur Mercedes-Benz eVito Tourer var frumsýndur í þessari viku og var að vonum mikil spenna fyrir frumsýningunni á þessum vinsæla atvinnubíl sem verður nú fáanlegur sem rafbíll.

Mercedes-Benz eVito Tourer

Hinn nýi og rafmagnaði eVito Tourer er hreinn rafbíll án úbtlásturs og allt að 421 km drægni. Rafhlaðan skilar 150 kW eða 204 hestöflum og togið er alls 362 Nm. Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% á innan við 45 mínútum.

eVito Tourer er með pláss fyrir níu farþega, auk bílstjóra. Bíllinn býður upp á mikil þægindi fyrir farþega sem njóta góðs af tæknivæddu umhverfi innanrýmisins.

Bíllinn hefur breyst talsvert í útliti bæði að innan og utan. Framhluti bílsins er með nýrri hönnun og innanrýmið er nokkuð breytt, m.a með nýju sætisáklæði. Nýi bíllinn er mjög tæknivæddur en hann er m.a. í boði með stafrænni myndavél í stað afturspegils sem sýnir allt sem er fyrir aftan bílinn.

Aksturseiginleikarnir hafa verið bættir enn frekar með nýjustu AIRMATIC loftpúðafjöðrun. Aksturs- og öryggisbúnaður bílsins er eins og best verður á kosið, meðal annars með DISTRONIC hraðatengdum fjarlægðarskynjara. Þá er bíllinn búinn nýjasta Active Brake Assist búnaði.

Nýr Vito atvinnubíll er einnig í boði með fjögurra sílindra dísilvél. Lúxusgerð bílsins er væntanleg í sumar í EQV útfærslu sem er byggð á hinum gríðarvinsæla V-Class sem er mjög vinsæll hér á landi.

Vito hefur verið mjög vinsæll atvinnubíll og þriðja kynslóð bílsins hefur selst í rúmlega 508 þúsund eintökum á heimsvísu síðan hún kom á markað haustið 2014. Bíllinn er framleiddur í verksmiðju Mercedes-Benz í Vitoria á Spáni.