10. sept. 2020

Ný kynslóð af Mercedes-Benz S-Class frumsýnd

Mercedes-Benz frumsýndi í gær nýja kynslóð af S-Class lúxusbílnum sem er án efa tæknivæddasti fjöldaframleiddi bíll heims, búinn ótrúlegum tæknibúnaði og getur ekið á sjálfstýringu að allmiklu leyti.

Mercedes-Benz S-Class

S-Class er flaggskip fólksbílaflota Mercedes-Benz og mest seldi lúxusbíll heims síðan hann kom fyrst á markað árið 1972.

Nýr S-Class er búinn Drive Pilot kerfinu sem getur ekið að miklu leyti á sjálfstýringu. Kerfið er með háþróuðum nemum allt í kringum bílinn, auk 360 gráðu myndavélar. Þessi sjálfstýringarbúnaður gefur bílnum færi á að skipta um akrein sjálfur ef ökumaður gefur eingungis stefnuljós. Ökumaður getur gripið inn í hvenær sem er og tekið yfir aksturinn. Þá getur bíllinn nauðhemlað sjálfur ef hætta steðjar að á veginum fyrir framan hann, hvort sem um er að ræða ökutæki eða gangandi vegfarendur.

S-Class mun einnig koma í tengiltvinnútfærslu undir EQ Power merki Mercedes-Benz en drægi bílsins mun vera allt að 100 km skv. WLTP staðli. Nýr S-Class er enn stærri og rúmbetri en forverinn og sem dæmi má nefna að farangursrýmið hefur stækkað um 20 lítra í alls 550 lítra.

S-Class er fjórhjóladrifinn og kemur með aflmiklum bensín- og dísilvélum. S 500 með bensínvél skilar 435 hestöflum og 520 Nm í togi. Bensínbíllinn fer úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4,9 sekúndum sem er gríðarlega gott fyrir svo stóran lúxusbíl. Dísilvélarnar skila annars vegar 282 og hins vegar 325 hestöflum og fara úr kyrrstöðu í hundraðið á 5,4 og 6,4 sekúndum. Eyðslan er frá 7,8 lítrum á hundraðið í bensínbílnum miðað við blandaðan akstur en frá 6,2 lítrum á hundraðið í dísilbílnum. Hámarkshraði S-Class er 250 km/klst.

Lúxusinn er allsráðandi í innanrýminu þar sem mikið er lagt upp úr fyrsta flokks þægindum og vönduðu efnisvali. Sætin eru sérlega þægileg, úr þykku leðri og fara vel með ökumann og farþega. Hægt er að velja um 10 mismunandi nuddkerfi í sætunum.

Tæknin í nýjum S-Class er raunar í algerum sérflokki. S-Class verður í boði með fimm stórum skjám með OLED tækni og eru þeir mjög áberandi í glæsilegu innanrýminu og bjóða m.a. upp á 3D spilun. Bíllinn er í boði með mögnuðu Burmester® 4D hljómkerfi og hátalararnir í bílnum eru alls 31 talsins. Bíllinn er með annarri kynslóð MBUX margmiðlunarkerfisins sem veitir ökumanni og farþegum nýjan heim upplýsinga og afþreyingar. MBUX býður aðgengilega og þægilega stjórnun með raddskipunum, snertingu eða bendingum. Kerfið lærir sjálfkrafa og lagar sig sífellt betur að þörfum ökumannsins.