27. júlí 2021

Mercedes-Benz færir sig alfarið yfir í rafbíla

Þýski lúxusbílaframleiðandinn Daimler stefnir að því að framleiða eingöngu rafknúnar Mercedes-Benz bifreiðar í lok áratugarins.

Mercedes-Benz færir sig alfarið yfir í rafbíla

Framleiðandinn hyggst því hætta alfarið þróun bensín- og dísilbíla og þar með færa sig úr áðurkynntri “Electric First” stefnu yfir í “Electric Only”.

Allar nýjar bíltegundir Mercedes-Benz verða alrafknúnar frá árinu 2025. Mercedes-Benz áætlar að hanna þrjár nýjar gerðir af undirvögnum sérætluðum fyrir rafbíla; MB.ES, sem verða miðlungsstórar til stórar farþegabifreiðar, AMG.EA, sem verða sportbifreiðar undir merkjum AMG, og VAN.EA, sem verða minni sendibifreiðar.

Frá og með árinu 2025 mun neytendum jafnframt gefast kostur á að kaupa alrafknúna gerð í öllum þeim flokkum sem Mercedes-Benz býður upp á bifreiðar.

,,Hraði rafbílavæðingarinnar er að aukast og sérstaklega í flokki lúxusbifreiða, þar sem Mercedes-Benz staðsetur sig. Við færumst nær orkuskiptaviðsnúningnum og við verðum tilbúin þegar markaðir skipta alfarið yfir í rafmagn undir lok áratugarins".
Ola Källenius, forstjóri Daimler og Mercedes-Benz.

Í ljósi þessara fyrirætlana hefur Daimler gefið út að Mercedes-Benz muni gefa í við rannsóknir og þróun og munu fjárfestingar vegna rafknúinna bifreiða á milli áranna 2022 og 2030 nema yfir 40 milljörðum evra.

Mercedes EQS 580 4MATIC
All­ar nýj­ar bíl­teg­und­ir Mercedes-Benz verða alraf­knún­ar frá ár­inu 2025