14. mars 2023

Leiðandi afl til framtíðar - Rafmögnuð EQ sýning

Laugardaginn 18. mars klukkan 12-16 á Krókhálsi 11 verður sýningin Leiðandi afl til framtíðar.

Mercedes-Benz hefur sett sér metnaðarfull markmið í rafmagnsvæðingu bílaflotans og til að vekja athygli á þessari vegferð stendur Askja fyrir sýningu þar sem rafbílar Mercedes-EQ verða í brennidepli.

Mercedes-Benz leggur mikla áherslu á sjálfbærni, t.d. með notkun endurvinnanlegra efna, hringrásarhagkerfi, og nýsköpun og þróun nýrra hráefna. Stefnt er að því að allir fólksbílar Mercedes-Benz verði rafvæddir árið 2030 þar sem markaðsaðstæður leyfa. Einnig er gert ráð fyrir að 40% alls efnis sem notað verður í framleiðslu rafbíla sé endurunnið. Annað stórt markmið Mercedes-Benz er að allir bílar verði kolefnishlutlausir fyrir 2039.

Komdu við á laugardag og kynntu þér glæsilegt úrval Mercedes-EQ og spennandi vegferð Mercedes-Benz í átt að rafmagnaðri og sjálfbærri framtíð.

Við hlökkum til að sjá þig.