27. apríl 2021

Kia Sorento vinnur til Red og iF hönnunarverðlauna

Kia vann bæði til Red Dot og iF hönnunarverðlauna á dögunum

Kia vann bæði til Red Dot og iF hönnunarverðlauna á dögunum í flokki stórra sportjeppa fyrir hinn nýja Kia Sorento Plug-in Hybrid. Sorento, sem er flaggskip bílaflota Kia, hefur þegar unnið til fjölda verðlauna á undanförnum mánuðum.

Sorento fékk m.a. Gullna stýrið í Þýskalandi í flokki stórra sportjeppa og verðlaun fyrir bestu hönnunina hjá Auto Bild Allrad. Nú er tengiltvinnútfærsla bílsins einnig verðlaunuð fyrir fallega hönnun hjá Red Dot og iF en verðlaunin hjá þessum aðilum þykja þau eftirsóknarverðustu í hönnunarheiminum.

Kia hefur fengið alls 47 Red Dot og iF hönnunarverðlaun fyrir bíla sína síðan 2009 sem er einstakur árangur.

,,Við erum afskaplega stolt og ánægð með þessa miklu viðurkenningar sem Kia er að fá fyrir hönnun á hinum nýja Sorento. Kia Sorento hefur sópað til sín verðlaunum á stuttum tíma síðan hann kom á markað og gaman að því að bíllinn skuli einnig fá verðlaun nú í Plug-in Hybrid útfærslu frá svo virtum aðilum sem Red Dot og iF sannarlega eru. Þessi verðlaun koma á sérlega skemmtilegum tíma því við vorum einmitt að fá bílinn í tengiltvinnútfærslu til okkar í Öskju. Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu eftir tengiltvinnbílnum en dísilútfærslan af Sorento, sem kom í lok síðasta árs, hefur þegar vakið mikla athygli og verið vinsæll. Tengiltvinn útfærsla Sorento er nú til sýnis og reynsluaksturs hjá okkur í Kia húsinu að Krókhálsi 13".
Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia