30. mars 2022

Kia Niro EV efstur hjá J.D. Power

Kia eigendur völdu Kia Niro besta bílinn annað árið í röð í áreiðanleikakönnun J.D. Power fyrir eigendur rafbíla.

Kia e-Niro

Yfir 8 þúsund bandarískir rafbílaeigendur tóku þátt í könnunninni. Kia Niro EV varð efstur yfir fjöldaframleidda bíla í þessum flokki og er þetta annað árið í röð sem bíllinn fær þessi eftirsóttu verðlaun.

Eigendur Kia Niro EV voru sérlega ánægðir með gott drægi bílsins á rafmagni, lágan viðhaldskostnað, sem og hönnun og aksturseiginleika bílsins.

Kia Niro hefur spilað stórt hlutverk í rafbílavæðingu Kia. Kia Niro EV hefur verið mest seldi rafbíll Kia síðan hann kom á markað árið 2017 og hefur drægi hans verið aukið jafnt og þétt á þeim tíma. Niro EV hefur fengið mikið lof fyrir áreiðanleika, gott drægi og aksturseiginleika.

Kia e-Niro