15. feb. 2022

Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power

Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun banda­ríska greiningarfyrirtækisins J.D. Power yfir bílaframleiðendur.

Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power

Þetta er áttunda árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílamerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða.

Í könnun J.D. Power voru rúmlega 33 þúsund bíleigendur spurðir fjölmargra spurninga á mörgum mismunandi svipuð um áreiðanleika bíla þeirra og bilanir síðustu þrjú ár. Könnunin var framkvæmd í júlí til nóvember á síðasta ári en í þetta skipti var hluta bætt við sem snýst að hugbúnaðarbilunum og er það í fyrsta skipti sem það er gert. Með þessari könnun er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðanda. Þetta er í 36. skipti sem könnun J.D. Power er framkvæmd en hún þykir ein virtasta áreiðanleikakönnun í bílageiranum.

Forsala Kia Sportage
,,Við erum afar ánægð og stolt með þennan frábæra árangur Kia í áreiðanleikakönnun J.D. Power. Kia hefur lagt mikið upp úr því að framleiða trausta og vel hannaða bíla þar sem nýjasta tækni og öryggi spila stórt hlutverk ásamt mjög góðum aksturseiginleikum. Kia var fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum til að bjóða 7 ára ábyrgð á bílum sínum. Það er því stór rós í hnappagat Kia að vera á toppnum áttunda árið í röð í þessari virtu könnun hjá J.D Power yfir bílaframleiðendur í magnsölu sem og að vera núna í fyrsta skipti í fyrsta sæti yfir öll bílamerki".
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju