Kynntir verða tveir spennandi 100% rafbílar sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu, Kia EV6 og EQS frá Mercedes-EQ.
Kia EV6 hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu frá því fyrstu myndir birtust af bílnum. Hinn nýi EV6 er þróaður samkvæmt nýrri hönnunarheimspeki Kia sem einblínir á rafbíla framleiðandans. Hönnunin er djörf og framsækin í takt við þær spennandi nýjungar sem rafbílar kalla fram. Kia EV6 er aflmikill rafbíll sem dregur allt að 528 km samkvæmt WLTP staðli. Hægt er að velja um 229 og 325 hestafla rafmótor. EV6 er í boði bæði afturhjól- og fjórhjóladrifinn. Þetta er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia. EV6 verður einnig fáanlegur í GT útfærslu sem er 580 hestöfl og kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 3,5 sekúndum. GT bíllinn er væntanlegur 2023.
Tæknivæddur lúxusrafbíll
EQS frá Mercedes-EQ er rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-EQ og afar tæknivæddur bíll sem notar m.a. gervigreind. EQS verður bæði með framhjóla- og aldrifi. Tvær tegundir rafhlaða verða í boði, 108 kWh og 90 kWh og talsverður fjöldi uppstillinga á drifrásum. Stærri rafhlaðan skilar yfir 700km drægi samkvæmt WLTP og í ákveðinni útfærslu má ná allt að 770km skv. WLTP staðli. Minni rafhlaðan mun skila 640 km samkvæmt WLTP staðlinum. Öflugri gerðin verður 523 hestafla með hámarkstog alls 855 Nm. Minni rafhlaðan skilar 333 hestöflum og 568 Nm í hámarkstogi. Framdrifsútfærsla á EQS með stærri rafhlöðunni er 6,3 sekúndur 0-100 km hraða og í aldrifs útfærslunni aðeins 4,3 sekúndur 0-100 km hraða.
EQS byggir á EVA undirvagninum sem Mercedes-EQ hyggst nota í mörgum öðrum tegundum rafbíla sinna á næstunni m.a. EQE sem er væntanlegur fljótlega. EQS er fyrsti EQ bíll þýska lúxusbílaframleiðandans sem byggir á þessum nýjum EVA undirvagni sem er stækkanlegur og liggur flatur undir bílnum líkt og hjólabretti. EQS mun einnig koma í AMG útfærslu á næstunni en sá bíll verður rúmlega 600 hestöfl og fer úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 3,5 sekúndum.