13. okt. 2020

Afhentu fyrsta Honda e rafbílinn

Fyrstu eintök verðlaunabílsins Honda e eru komin til landsins og afhendingar hafnar til kaupenda sem beðið hafa með mikilli eftirvæntingu.

Honda e er fyrsti bíll Honda sem er eingöngu knúinn rafmagni og hefur bíllinn fengið mikið lof frá bílablaðamönnum og fagólki fyrir einstaka hönnun, tækni og akstureiginleika. Fyrsti Honda e bíllinn var afhentur á dögunum en eigandi hans er Þorsteinn Guðjónsson.

„Þorsteinn hefur beðið eftir bílnum af mikilli þolinmæði og tilhlökkun en að hans eigin sögn var hann farinn að telja niður klukkutímana fram að afhendingu bílsins.“
Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda umboðsins hjá Öskju
„Honda e hefur fengið mjög mikla athygli hjá okkur fyrstu dagana hér í sýningarsalnum okkar á Krókhálsi. Bíllinn hentar mjög vel fyrir þarfir okkar í daglegu amstri borgarlífsins þar sem hann er einstaklega lipur, búinn allt að 8 myndavélum og getur jafnvel lagt sjálfur í bílastæði. Staðalbúnaður bílsins er einstaklega ríkulegur og er hann búinn varmadælu sem kemur sér einstaklega vel á köldum morgnum vetrarins sem nú fer í hönd,“
segir Hlynur

Hægt er að skoða og reynsluaka Honda e hjá Honda umboðinu í glæsilegum húsakynnum á Krókhálsi 13 þar sem sölumenn veita allar upplýsingar um þennan skemmtilega rafbíl.