Í tuttugu ár hefur Askja verið traustur þátttakandi á íslenskum bílamarkaði. Með öflugum hópi starfsfólks og frábærum vörumerkjum hefur starfsfólk Öskju unnið að því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og upplifun. Við störfum á grunni þeirra gilda sem hafa mótað okkur frá fyrsta degi: metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði.
Við fögnum þessum tímamótum með nýrri rödd og nýju hljóði, þar sem fersk nálgun í markaðsefni sýnir hver við erum í dag og hvað við stöndum fyrir.
Takk fyrir að vera með okkur í tuttugu ár, við hlökkum til að aka áfram með þér inn í framtíðina.