Verkstjóri á bílaverkstæði - Askja Reykjanesbæ
Askja Reykjanesbæ er hluti af Bílaumboðinu Öskju og óskar eftir öflugum vinnandi verkstjóra til starfa í nýrri starfsstöð í Reykjanesbæ. Í boði er spennandi starf hjá öflugu þjónustufyrirtæki í fremstu röð.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggja og hámarka flæði verkefna á verkstæði
- Tryggja gæði verkefna á verkstæði
- Aðstoð við aðra starfsmenn verkstæðis
- Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
- Bilanagreiningar
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund og jákvætt viðmót
- Reynsla af verkstjórn á verkstæði
- Sveinspróf í bifvélavirkjun
- Reynsla af vinnu á verkstæði
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
- Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Ökuréttindi
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Grétar Ágústsson framkvæmdastjóri þjónustusviðs sga@askja.is
Umsóknarfrestur frá:19.06.2025
Umsóknarfrestur til:29.06.2025