Þjónusturáðgjafi Mercedes-Benz

Við leitum að þjónustuliprum og ábyrgum aðila til að sinna móttöku viðskiptavina fólks – og sendibílaverkstæðis Mercedes-Benz.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði.

Helstu verkefni:

  • Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf til þeirra
  • Móttaka bókana fyrir þjónustu og viðgerðir
  • Tilboðs- og reikningagerð
  • Svara fyrirspurnum og erindum sem berast

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjónustustörfum æskileg
  • Samstarfs- og samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Áhugi og þekking á bílum kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Fagleg framkoma, snyrtimennska og stundvísi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Gild ökuréttindi

Af hverju Askja?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Samkeppnishæf kjör
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur og líkamsræktaraðstaða

Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.

Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Kristjánsson þjónustustjóri okr@askja.is

Umsóknarfrestur frá:13.06.2025
Umsóknarfrestur til:27.06.2025

Sækja um