Þjónusturáðgjafi - Askja Reykjanesbæ

Askja Reykjanesbæ er hluti af Bílaumboðinu Öskju og óskar eftir þjónustuliprum og ábyrgum aðila með reynslu úr bílgreinum til að sinna samskiptum og ráðgjöf til viðskiptavina.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.

Helstu verkefni:

  • Samskipti við viðskiptavini
  • Ráðgjöf og tilboðsgerð
  • Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
  • Frágangur á verkbeiðnum og reikningagerð

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund og mikil samskiptafærni
  • Færni í teymisvinnu
  • Reynsla af sambærilegum störfum
  • Sveinsbréf í bifvélavirkjun eða öðrum bílgreinum kostur
  • Góð tölvufærni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Af hverju Askja?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Samkeppnishæf kjör
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur

Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.

Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Grétar Ágústsson Framkvæmdastjóri þjónustusviðs Öskju sga@askja.is

Umsóknarfrestur frá:19.06.2025
Umsóknarfrestur til:29.06.2025

Sækja um