Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ

Askja Reykjanesbæ sem er hluti af Bílaumboðinu Öskju óskar eftir færum bifvélavirkjum til starfa í nýrri starfsstöð í Reykjanesbæ. Í boði eru spennandi störf hjá öflugu þjónustufyrirtæki í fremstu röð.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
  • Þjónustuskoðanir
  • Bilanagreiningar

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í bifvélavirkjun
  • Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
  • Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Ökuréttindi

Af hverju Askja?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur

Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Grétar Ágústsson framkvæmdastjóri þjónustusviðs sga@askja.is

Umsóknarfrestur frá:19.06.2025
Umsóknarfrestur til:06.07.2025

Sækja um