Bifvélavirki fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart

Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða bifvélavirkja á fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
  • Þjónustuskoðanir

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í bifvélavirkjun
  • Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
  • Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Ökuréttindi

Af hverju Askja?

  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
  • Líkamsræktaraðstaða

Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um; óháð kyni.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Gunnlaugsson verkstjóri jgu@askja.is

Umsóknarfrestur frá:03.04.2024
Umsóknarfrestur til:16.06.2024

Sækja um