Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru búin að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á milli Hestháls 15 og Krókháls 7 í Reykjavík og munu opna það formlega á laugardag.
Nýja bílasölusvæðið, sem ber heitið K7 með tilvísun í Krókháls 7, er rúmlega 23 þúsund fermetrar að stærð. Það var sérstaklega skipulagt fyrir bílasölurnar fjórar og rúmar alls um 800 bíla.
K7 er eitt stærsta bílasölusvæði sem skipulagt hefur verið fyrir sölu fólks- og sendibíla hérlendis. Mikið hefur verið lagt upp úr snyrtilegum frágangi, svo sem með malbikun lóðar, sérhannaðri lýsingu og fleiru, en lóðin blasir við vegfarendum frá gatnamótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar. Fullkomin lýsing er á svæðinu og mikið verður lagt upp úr snyrtilegum frágangi. Framundan er uppsetning hleðslustöðva fyrir rafbíla á lóðinni. Það er Arkís sem sá um hönnun svæðisins.