2. júlí 2021

Mercedes-Benz kynnir nýjan eActros rafmagnaðan flutningabíl

Mercedes-Benz hefur kynnt nýjan eActros flutningabíl sem er hreinn rafbíll.

Mercedes-Benz kynnir nýjan eActros rafmagnaðan flutningabíl

Drægni eActros er allt að 400 km en rafhlöðupakkar bílsins skila honum 420 kW að afli. Við hönnun á bílnum hefur verið lögð áhersla á hagkvæmni í rekstri og stafrænar lausnir.

Akstureiginleikar eActros eru mjög góðir eins og Mercedes-Benz er þekkt fyrir. Ný og afar þýð tveggja þrepa sjálfskipting hjálpar til við að gera aksturinn mjúkan og þægilegan.

Bíllinn er vel búinn nýjustu tækni og aðstoðarkerfum til að gera aksturinn betri og öruggari. Þar má nefna myndavél í stað spegla og ökumannsklefinn er háþróaður bæði hvað varðar tækni og öryggi.

Hinn nýi eActros er með fjóra rafhlöðupakka en hver inniheldur 105 kW. Aflið er því sannarlega til staðar fyrir þennan stóra flutningabíl í öllum þeim verkefnum sem fyrir hann er lagt. Það tekur aðeins rétt rúmlega klukkustund að hlaða rafhlöður bílsins úr 20-80%. Hinn nýi eActros fer í framleiðslu í haust í verksmiðjum Mercedes-Benz í Wörth am Rhein í Þýskalandi.

Mercedes-Benz er stærsti atvinnubílaframleiðandi heims og hef­ur aukið mjög undanfarið úrval atvinnubíla sem eru 100% rafmagnaðir. Nýlega komu til landsins eSprinter og eVito sendibílarnir sem eru góð viðbót við farþegabílana EQV og eVito Tourer en allir þessir bílar eru hreinir rafbílar.

Nánar um eActros