Ökuþór með meirapróf óskast
Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða drífandi og duglegan aðila á bílaflutningabíl fyrirtækisins.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.
Helstu verkefni:
- Flutningur á nýjum og notuðum bílum til og frá Öskju
- Flutningur á bílum til umboðsaðila um allt land
- Umsjón og þrif á flutningabílum Öskju
- Önnur tilfallandi verkefni sem snúa að bílaflutningum
Hæfniskröfur:
- Meirapróf
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulund og sveigjanleiki
- Heiðarleiki og stundvísi
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
- Líkamsræktaraðstaða
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Thorleifsson verkstjóri Standsetningar joth@askja.is
Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við alla áhugasöm til að sækja um óháð kyni.
Umsóknarfrestur frá:14.04.2025
Umsóknarfrestur til:27.04.2025