Störf í boði

 

ASKJA óskar eftir að ráða afburðastarfsmenn í eftirtalin störf.

Bifvélavirkjar - vélvirkjar

Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða á fólks- og atvinnubílum Mercedes-Benz og Kia í nýju húsnæði félagsins við Krókháls í Reykjavík. Virk þjálfun og endurmenntun á sér stað samkvæmt gæðastöðlum birgja sem eru þeir fremstu í heiminum í dag.

Hlutverk bifvéla- og vélvirkja er að greina, finna úrlausnir og vinna við viðgerðir á bílaverkstæðum.

Ábyrgð og verkefni:
- Öll almenn viðhalds- og viðgerðavinna
- Meðhöndlun bilanagreininga
- Deila þekkingu með starfsfélögum
- Framfylgja öryggisreglum Öskju og gæðakröfum framleiðenda

Hæfniskröfur:
- Öguð og nákvæm vinnubrögð
- Réttindi sem bifvélavirki
- Reynsla af starfi sem bifvélavirki
- Tungumálakunnátta er góður styrkleiki
- Tölvukunnátta
- Áhugi á því að auka við sig menntun og færni sem og vilji til að kynna sér tækninýjungar
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

Sérstaklega er leitað eftir starfskröftum sem hafa áhuga á að vinna hjá ungu og kraftmiklu fyrirtæki þar sem mikið er lagt upp úr góðum starfsanda og metnaði starfsfólks til að veita góða þjónustu.

Aðeins er tekið á móti skriflegum umsóknum í netfangið vinna@vinna.is