Frétt

17.12.2011

Augu Mercedes-Benz beinast að Íslandi

Páll Halldór Halldórsson, sölustjóri atvinnubíla hjá Öskju, hefur lagt mikla vinnu í Mercedes-Benz Sprinter bíl sinn og fengið aðstoð margra samstarfsmanna sinna og vina. Bíllinn er sannarlega tignarlegur á 46 tommu dekkjum og hefur vakið mikla athygli bæði hérlendis sem erlendis. Hópur fréttamanna gerði sér sérstaka ferð til Íslands á dögunum til þess að mynda bílinn í bak og fyrir auk þess sem tekið var viðtal við Pál. Afraksturinn er nú sýndur í myndbandi á myvan.com sem er nýr samfélagsmiðill í formi sjónvarpsefnis. Myndbandið er einnig góð Íslandskynning þar sem það er í fallegu umhverfi á Hellisheiði, í Þórsmörk og víðar.

Fréttin um Pál og bílinn hans vakti strax mikla athygli þegar vefsíðan fór í loftið í gær en þetta var fyrsta fréttin sem sýnd var á vefnum. Miðillinn er í eigu Daimler, sem er framleiðandi Mercedes-Benz bifreiða, en hann er fyrst og fremst ætlaður að höfða til eigenda trukka, atvinnubílstjóra og annarra áhugamanna um bíla.

Þetta frumkvöðlastarf Páls er aðdáunarvert og hefur þegar lagt grunninn að sölu svona bíla hér á landi, bæði til einstaklinga, ferðafyrirtækja og nú björgunarsveita. ,,Þetta hefur verið mjög skemmtilegt verkefni en tekið mikinn tíma. Bíllinn hefur reynst mjög vel við allar erfiðustu aðstæður og hefur honum nú verið ekið yfir 80 þúsund km. Það er mjög skemmtilegt að áhuginn skuli ná út fyrir landsteinana og skuli vera fyrsta frétt hjá myvan.com sem mun ná áhorfi gríðarlegs fjölda bílaáhugamanna um heim allan og sérstaklega í atvinnubílageiranum," segir Páll ánægður með afraksturinn. Myndbandið má einnig sjá á facebook-síðu Mercedes-Benz Ísland. 

Til baka