Frétt

01.11.2011

Opið hús að Krókhálsi 11, n.k. laugardag

Atvinnubíladeild Öskju verður með opið hús að Krókhálsi 11, laugardaginn 5. nóvember n.k. á milli kl. 12:00 og 16:00.

,,Við munum sýna 35 atvinnubíla í eigu viðskiptavina, auk bíla í eigu Öskju," segir Páll Halldór Halldórsson, sölustjóri atvinnubíla hjá Öskju. ,,Til sýnis verða rútur, flutningabílar, sendibílar, körfubílar, kranabílar og dráttarbílar,  stórir sem smáir, svo eitthvað sé nefnt. Þá verður boðið upp á tilboðsverð á völdum Mercedes-Benz gjafavörum, auk þess sem sölumenn og starfsfólk verkstæðis og þjónustudeildar verða á staðnum. Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti og gangandi."

 

Til baka