Metsala á Mercedes-Benz bílum á heimsvísu

September var söluhæsti mánuður Mercedes-Benz á árinu á heimsvísu. Alls seldi Mercedes-Benz 120.982 bíla um allan heim í september og hafa aldrei selst svo margir bílar áður hjá þýska lúxusbílaframleiðandanum í september mánuði. Allt stefnir í að árið 2011 verði metár hjá Mercedes-Benz í bílasölu en nú fyrstu níu mánuði ársins hafa selst 919.288 Mercedes-benz bílar á heimsvísu sem er 7,6% aukning frá síðasta ári.
,,Mercedes-Benz heldur áfram að vaxa og dafna. Eftir að hafa skilað metsölu á öðrum ársfjórðungi höfum við náð að gera enn betur á þriðja ársfjórðungi og setja nýtt sölumet. Við munum halda áfram á sömu braut á fjórða ársfjórðungi en í nóvember munum við að kynna til leiks nýjar kynslóðir af M-Class og B-Class. Allt stefnir því í að árið 2011 verði metár í bílasölu hjá Mercedes-Benz,“ segir Dr. Joachim Schmidt, aðstoðarforstjóri markaðs- og sölusviðs þýska lúxusbílaframleiðandans.
Mesta og mikilvægasta söluaukningin á Mercedes-Benz bílum í september var í Kína eða 12,7% en auk þess varð mikil söluaukning á bílunum í Rússlandi, Taiwan, Suður-Kóreu og Indlandi.
Verðmætasta vörumerkið í Evrópu
Þríhyrnda stjarnan, merki Mercedes-Benz, er verðmætasta vörumerkið í Evrópu og það tólfta verðmætasta í heimi. Þetta er niðurstaða hins virta markaðsrágjafarfyrirtækis Interbrand Zinzmeyer&Lux sem sérhæfir sig í að verðmeta öflugustu vörumerkin á markaðinum hverju sinni. Mercedes-Benz er auk þess verðmætasta vörumerki bílaframleiðenda í heiminum. Vörumerkjavirði Mercedes-Benz merkisins hefur aukist í 27.455 milljarða bandaríkjadala sem er 9% aukning frá árinu 2010. Vörumerkjavirði þýska lúxusbílaframleiðandans hefur því aukist jafnt og þétt síðan 2009.


