Frétt

27.09.2011

Nýr Kia Rio dísel eyðir aðeins 3.2 lítrum á hundraðið

Það er engin ládeyða í kringum Kia Motors sem er á meðal mest vaxandi bílaframleiðandi heims. Nýr Kia Sportage leit dagsins ljós fyrir skemmstu og hefur síðan unnið til fjölda verðlauna og m.a. verið valinn bíll ársins í Skotlandi. Á næstu dögum kynnir bílaumboðið Askja nýjan Kia Picanto í flokki A-bíla og á næstu vikum nýjan Kia Rio í flokki B-bíla.

1.1 lítra díselútfærsla Kia Rio er sparneytnasti bíll í heimi, með aðeins 3.2 lítra eyðslu á hundraðið í blönduðum akstri. Magn CO2 í útblæstri er aðeins 85 g/km sem er með
því allra lægsta sem þekkist. Kia Rio verður einnig í boði í 1.4 lítra dísilútgáfu. Báðar gerðirnar eru beinskiptar. Askja mun einnig bjóða upp á 1.4 lítra sjálfskipta bensínvél.

Finnur Thorlacius, bílarýnir Morgunblaðsins, skellti sér til Portugal á dögunum og kynnti sér nýjan Kia Rio. Sjón er sögu ríkari. Smelltu hér til að horfa á bílarýnina.

Myndir með frétt

Til baka