Nýr Kia Picanto væntanlegur á næstunni

Askja frumsýnir á næstunni nýjan Kia Picanto sem býðst eins og allir nýir Kia bílar með 7 ára ábyrgð. Finnur Orri Thorlacius reynsluók Kia Picanto nýverið og fór fögrum orðum um bílinn í grein í Finni í Morgunblaðinu. Þar segir hann m.a.: „Bíllinn hefur þegar unnið til verðlauna erlendis fyrir frísklegt útlit sitt. Picanto er hannaður fyrir borgarumferðina, vel fer um farþega... Rými fyrir aftursætisfarþega er merkilega gott, þ.e. bæði fóta- og höfuðrými. Hönnun innanborðs er til stakrar prýði og verður hann að teljast með fallegri bílum hvað það varðar í þessum flokki.“
Í niðurlagi greinarinnar stendur orðrétt: „Ekki má gleyma að Kia býður sjö ára ábyrgð á öllum sínum bílum, líka Kia Picanto. Svo vissir eru þeir um gæði þeirra.... Hann mun kosta undir tveim milljónum kr. og fellur því í flokk mjög fárra slíkra bíla. Kia Picanto af nýrri kynslóð er ekki ódýr bíll sem vill svo til að sé góður, heldur góður bíll sem vill svo til að er ódýr.
Þið getið lesið greinina í heild sinni með því að smella hér.
Smellið hér til að opna Kia Picanto bækling.
Opna Kia Picanto örvef.




