Frétt

13.09.2011

Ekið um torfærur Dakar rallsins á Kia Sorento

Dakarrallið hefur verið haldið fyrstu tvær vikurnar í janúar frá árinu 1979 og er talin erfiðasta aksturskeppni sem um getur. Alexandre Correia, ritstjóri, og Paulo Calisto, ljósmyndari, torfærutímaritsins Todo Terreno í Portugal hafa undanfarin 7 ár ekið á slóðum Dakar rallsins og vita að til þess þurfa þeir áreiðanlegt 4x4 ökutæki. Í fyrra óku þeir eldri gerðinni af Kia Sorento og í janúar  á þessu ári nýju gerðinni alls 7.436 km leið frá Chile til Argentínu. Tvo þriðju hluta leiðarinnar óku þeir á malarvegum í 4000 metra hæð í Andesfjöllum.

“Við erum ekki að þessu til að vinna heldur sanna að það er hægt að aka á slóðum Dakar rallsins og upplifa einstakt ævintýri.  Við sneiddum framhjá eyðimerkursöndunum. Þess í stað ókum við Kia Sorento í hæð sem keppendur fara yfirleitt ekki í – hæð þar sem menn og vélar eiga erfitt með öndun og gang.

Það er ekki að sökum að spyrja að Kia Sorento reyndist frábærlega í ferðinni og þeir félagar gáfu honum bestu meðmæli. Myndirnar tala sínu máli.

Myndir með frétt

Til baka