Frétt

22.08.2011

Mercedes-Benz B 180 NGT á sérstöku tilboðsverði

Nú er tækifærið til að tryggja sér frábæran metanbíl frá Mercedes-Benz á einstöku tilboðsverði. Bíllinn er sjálfskiptur, með sjálfvirkri loftkælingu, innfelldu barnabílstæri, Bluetooth símkerfi, 16“ álfelgum, heilsársdekkjum o.fl. og verðið er aðeins kr. 4.990.000. Vinsamlegast athugið að um takmarkað magn er að ræða.

Mercedes-Benz B 180 NGT brennir bæði bensíni og metangasi og er einn af þremur bílum B-línunnar sem uppfyllir markmið Mercedes-Benz um að draga úr eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.

Með B 180 NGT fær ökumaður val um hvort bíllinn gangi fyrir bensíni eða metangasi. Með því að þrýsta á rofa á fjölaðgerðastýri bílsins skiptir hann yfir á metangas eða öfugt án þess að þess verði vart í vinnslu bílsins. Að sögn Sigurðar P. Sigfússonar, sölustjóra Mercedes-Benz hjá Öskju, þá notar bifreiðin aðeins 4,9 kg af metangasi (6,8 Nm3) á hverja 100 km. Á metangasi er hægt að aka 300 km og á bensíni um það bil 700 km eða allt að 1.000 km á eldsneytisbirgðum.

Myndir með frétt

Til baka