Frétt

04.07.2011

Nýr Actros - þaulprófaður

Fjárfestingin að baki hönnun og þróun nýs Actros nemur yfir einum milljarði evra. Mercedes-Benz Actros er enda fyrsti vörubíllinn sem er hannaður að öllu leyti út frá Euro VI viðmiðunum um umhverfisvernd. Þessu til viðbótar lagði Mercedes-Benz meira en einn milljarð til fjárfestinga í verksmiðjum og tólum og tækjum til framleiðslu vörubílsins. Nýr Actros gekk í gegnum viðameiri prófanir en þekkst hefur til þessa. Alls var gerðinni ekið í yfir 20 milljónir km, þar af í yfir 40 gráða hita í Sierra Nevada eyðimörkinni og -40 gráða frosti við heimskautsbaug.

Opnað var fyrir pantanir á þessum nýja langflutningavagni 1. júlí. Helsti keppinautur nýja bílsins er reyndar fyrri gerð hans, Actros MP3, sem hefur selst í yfir 700 þúsundum eintaka frá markaðssetningu hans. Hann er því mestseldi vörubíllinn í sínum stærðarflokki í Evrópu. Umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi er Askja ehf.

Þrjú til sjö prósent minni eldsneytiseyðsla

Euro VI reglugerðin tekur gildi innan tíðar í Evrópu. Sú staðreynd varð til þess að Mercedes-Benz kynnir í raun tvær nýjar útfærslur af Actros. Annars vegar endurbætta og sparneytnari útfærslu af Euro V bílnum og hins vegar ögn dýrari Euro VI gerð, sem skilar enn lægri rekstrarkostnaði til lengri tíma litið.

Nýr Actros eyðir frá fjórum til sjö prósentum minna af dísilolíu en núverandi gerð, Actros MP3. Hann er því orkunýtnasti dísilknúni langflutningabíllinn í Evrópu í Euro VI flokknum.

Þessu má þakka nýrri aflrás sem styðst við nýjustu vélartækni, þar á meðal X-Pulse innsprautunarkerfið, hringrás fyrir afgasið, sérstakri meðhöndlun á afgasi með Blue Tec dísiltækninni og lokaðri sótagnasíu. Þessi búnaður hefur verið árangursprófaður af viðskiptavinum í Bandaríkjunum og Japan í yfir 70.000 ökutækjum. Áreiðanleiki búnaðarins og sparneytni hefur hefur átt sinn þátt í að stórauka markaðshlutdeild Mercedes-Benz í þessum löndum.

Mercedes-Benz ætlar að auka sölu sína um 20% á árinu

Hubert Troska, yfirmaður atvinnubíla Mercedes-Benz segir að því sé spáð að sala á  vörubílum í yfir sex tonna flokki aukist um 25% á árinu. Áætlanir Mercedes-Benz séu að auka sína sölu um 20%.

Nýr Actros 20% býr yfir lengri rekstrartíma á vél, 1,2 milljónir km, og viðhaldsþjónusta er kominn upp í allt að 150.000 km sem leiðir til 6% rekstrarsparnaðar. Aukinn fjárfestingarkostnaður vegna Euro V útfærslu nýja bílsins næst því til baka á tveimur árum með lækkuðum rekstrarkostnaði.

Nýr Actros býr yfir enn betri aksturseiginleikum en fyrri gerð. Hann er með breiðari og stífari grind, nýrri gerð ása og nýju stýriskerfi. Þá er hann með svokölluðu stop-and-go-kerfi sem stýrir hröðun og hemlun á sjálfvirkan hátt þegar ekið er í þungri umferð.

Þægindi ökumanns stuðla að minni eldsneyiseyðslu

Allt í hönnun innanrýmisins miðar að því að létta störf atvinnubílstjórans. Rannsóknir hafa leitt í ljós að þægindi ökumanns leiða ekki einungis til öruggari aksturs heldur ennfremur til allt að 2ja lítra minni eyðslu á hverja 100 km. Ökumannssætið er með nuddaðgerð. Ökumannshúsið fæst með rúmum sem eru allt að 2,2 m á lengd og 0,75 m á breidd. Þau eru með hágæða dýnum sem bjóða upp á sömu þægindi og rúmið heima. 

Mercedes-Benz hefur nýlega opnað fyrir pantanir á nýjum Actros en hann kemur opinberlega á markað í lok september. Nýi bíllinn kemur með fjórum vélum frá 421 upp í 510 hestöfl með togi frá 2.100 til 2.500 Nm. Aflrásirnar falla annað hvort undir Euro V eða Euro VI flokkana.  Hann verður fáanlegur með sjö mismunandi gerðum ökumannshúsa, frá 2,3 til 2,5 metrum að breidd. Hægt verður að velja úr 11 mismunandi hjólhöfum. 

Myndir með frétt

Til baka