Kia með innbyggðu leiðsögukerfi

Nú er hægt að panta allar gerðir Kia bíla með innbyggðu leiðsögukerfi. Kerfið sem er afar fullkomið sýnir meðal annars yfir 29.900 km. af íslenskum vegum. Þar má einnig finna yfir 4.000 merkta staði, s.s. yfir 40 golfvelli, 200 hraðbanka, sundlaugar, veitingastaði, tjaldstæði og margt margt fleira. Hægt er að reynsluaka bíl hjá Öskju búinn þessu nýja leiðsögukerfi. Nú þegar hefur Askja afhent yfir 30 bifreiðar með nýja leiðsögubúnaðinum.
Hátt í 30.000 km. af merktum vegum
Leiðsögukerfð KIA er afar fullkomið og með nýjustu upplýsingum sem spanna yfir 29.900 km af íslenskum vegum og þar af 12.653 km af malarvegum og vegarslóðum. Auk þess eru öll heimilsföng á Íslandi innbyggð í kerfið og hægt er að sækja reglulega uppfærslu þar sem nýjungar koma inn. Hægt er að panta leiðsögukerfið í allar gerðir Kia cee´d, Sportage og Sorento sem og smábílanna Rio og Picanto sem kynntir verða í haust.
Samkvæmt rannsóknum eru bifreiðar búnar leiðsögukerfum hagkvæmari og umhverfisvænni í rekstri. Leiðsöguskerfi finna stystu leiðina á áfangastað sem sparar bæði eldnseyti og minnkar koltvísýringslosun.
